Það snjóar og snjóar þessa dagana, sjaldan verið svona síðan ég flutti til Reykjavíkur. Man reyndar að það var ansi mikill snjór þegar ég var heima með Ísak Mána í fæðingarorlofi 1999-2000, var oft erfitt að komast um hverfið með barnavagninn. Spuning um að vera ekkert að fara meira út í umferðina í dag (fór að sjálfsögðu í ræktina í morgun).
Við höfum reynt að fara út í snjóinn á hverjum degi, oftar en ekki hafa það verið ég, Logi Snær og Daði Steinn, en Davíð er búinn að vera í vinnunni og Ísak Máni meira spenntur fyrir að vera með vinum sínum. Spurning hvort Daði Steinn ráði við snjóinn eins og hann er núna.
Alsælir í sleðaferð, búnir að fara nokkrar ferðir í hverfisbrekkunni og á leið heim.
Eitt grýlukerti fannst í kastalanum og var það borðað í mesta bróðerni.
Á jóladag fórum við eins og venjulega í jólahangikjöt í Bröttuhlíð, þar hitti Daði Steinn hana Sollu sína og síðan hefur hann þóst vera Íþróttaálfurinn. Þau eru góð saman :-)
Ræktin:
Mánudagur 26.des. Body pump tími
Þriðjudagur 27. des. Brennsla, 20 mín á stigvél, 20 mín á orbí, magi, bak og planki.
Miðvikudagur 28. des. Bretti 5 km á 30 mín. magi, bak, planki.
Fimmtudagur 29. des. Tabata tími + hot kjarni tími. Mæli með Tabata.
Svo er bara spurning hvort hægt verður að hlaupa á laugardaginn, stefnan er sett á gamlárshlaup ÍR.
fimmtudagur, 29. desember 2011
föstudagur, 23. desember 2011
Jólin, jólin......
....eru alveg að koma. Ýmislegt höfum við aðhafst í aðraganda jólanna.
Við höfum notið útiverunnar í snjónum eins og kostur er.
Logi Snær og Daði Steinn fóru á hverfishólinn að renna sér á sleða.
Hérna fyrir utan hjá okkur er kominn þessi líka fíni köngulóavefur sem er alveg hægt að notast við.
Í vinnunni hjá Davíð var boðið upp á piparkökuhúsaskreytingar fyrir alla fjölskylduna. Logi Snær og Ísak Máni unnu þetta fagmannlega eins og sjá má.
Helgileikur 7. bekkinga var sýndur á öllum þremur jólaskemmtunum skólans og var Ísak Máni píanóleikari sýningarinnar og sló vart feilnótu - stóð sig með mikilli prýði og var móðirin afar stolt þegar samstarfsfólk var að hæla drengnum við mig.
Logi Snær gekk galvaskur í kring um jólatréð í skólanum og hengdi sinn þvott á fullu með Andra Frey sér við hlið. Grýla og fleiri skrýtnar verur kíktu í heimsókn við mikla kátínu.
Jólatréð er nú komið upp og allt að verða nokkuð klárt fyrir jólin.
Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla.
Ræktin:
Þriðjud. 20. Hot toning tími
miðv.d. 21. Hlaup á bretti 5km á 30 mín.
föstud. 23. Hlaup á bretti 10 km á 60 mín. - geri það ekki aftur nema í neyð.
laugard. 24. Body pump tími.

laugardagur, 17. desember 2011
Vika í jólin
Jólabaksturinn er hafinn og líklega bara lokið líka. Fjórar sortir í dag og allir frekar sáttir. Flestar ef ekki allar jólagjafir komnar í hús hjá mér að ég held - kemur í ljós þegar búið er að pakka öllu inn hvort einhver hefur orðið eftir.
Skelltum okkur meira að segja í Fjarðarkaup í dag til að versla jólasteikina - hún var góð hjá þeim í fyrra og því þá að taka einhverja sénsa núna. Ég fór hins vegar alveg yfir strikið í matarinnkaupunum í dag. Þar sem það er steik í matinn á morgun ákváðum við að hafa fisk í dag, steiktur fiskur í raspi varð fyrir valinu (Logi Snær elskar hann). Þegar ég hins vegar ætla að fara að elda fiskinn minn í kvöld álpast ég til að lesa á umbúðirnar og stendur þá ekki svínasíða að hætti þjóðverja! Ég hélt ég væri gengin af göflunum. Þegar ég svo tilkynnti Loga Snæ þetta sagði hann bara: Ég ætla ekki að borða - kjöt fer helst ekki inn fyrir hans varir. Það voru því eldaðar svínasíður með raspi fyrir rúmlega helming fjölskyldunnar og hinn hlutinn fékk pasta - sem er í uppáhaldi. Spuring hvort að jólastressið sé að gera útaf við mann eða hvað.
Strákarnir eru bara hressir. Við skelltum okkur öll út í snjóinn í dag og það finnst þeim ekki leiðinlegt, sleði, snjóbretti og skóflur - það má notast við það í þessari veðráttu. Logi Snær er samt ekki á fullhlöðnu batteríi ennþá, hefur lítið úthald en er að reyna sitt besta.
Ræktin:
Sunnudagur: Body pump tími
Þriðjudagur: Hot toning tími
Miðvikudagur: Hlaup 5km á 32 mín. á bretti.
Fimmtudagur: Body pump tími
Laugardagur: 10 km skokk með sprettum 80 mín. Var með tilvonandi meðskokkara í þjálfun.

föstudagur, 9. desember 2011
Powerade hlaupið
Mér tókst það! Ég skellti mér í Powerade hlaupið með henni Ingu vinkonu minni í næstu blokk. 6-7stiga frost og örlítill vindur. Færðin ekki upp á það besta, sumstaðar leið manni eins og maður færi tvö skref áfram og eitt afturábak. Planið var að hlaupa þessa 10 km á undir 70 mín. í þessu veðri og færð og hafa gaman af þessu. Það tókst og fengum við báðar skráðann tímann 63:06 sem við vorum bara hæst ánægðar með. Ég var þar að auki búin að mæta í ræktina kl. 6 um morguninn í Body pump tíma. Það var því ekki laust við að ég yrði þess vör í morgun að ég hefði verið að gera sitthvað í gær. Bara gaman að þessu.
Næsta hlaup í janúar og stefnan að sjálfsögðu sett á það.
Jæja, verð að fara að undirbúa Daða Stein undir nefkirtlatökuna.....

miðvikudagur, 7. desember 2011
Þegar piparkökur....
...bakast kökur....
Við Logi Snær skelltum í piparkökudeig í gærkvöldi svo við gætum bakað piparkökur eftir skóla í dag. Ég var með Daða Stein heima í dag og því gátum við bara byrjað strax og Logi Snær var búinn í skólanum. Ísak Máni var ekki kominn heim þegar myndasmiðurinn var á staðnum, en hann fékk samt einn þriðja af deginu til að vinna með.
Daði Steinn var í lokin orðinn mest spenntur fyrir að sáldra hveiti um allt, en allt gekk þetta ljómandi vel og allir sáttir - líka mamman sem þurfti að skúra yfir eldhúsgólfið eftir þetta.
Svo er bara spurning hvort við höfum okkur í það að skreyta eitthvað af þessu áður en það klárast.
Logi Snær hefur það þokkalegt og er farinn að vera í skólanum. Daði Steinn fær hins vegar helst ekki að fara út í kuldann og er pústaður í bak og fyrir svo hann verði góður á föstudag og komist í nefkirtlaaðgerðina. Hann er hins vegar fullur af orku og veit ekki alveg hvað hann á að gera af sér.
Unglingurinn er bara unglingur með öllu því sem því fylgir.
Ræktin gengur ágætlega, prófaði nýjan tíma í gærmorgun - reebok hot toning. Mjög rólegar en nokkuð krefjandi æfingar í 35 gráðu heitum sal, var samt ekki alveg að höndla hitann á tímabili. Svitnaði vel af þessu. Tók svo 5km á rúmum hálftíma á brettinu í morgun - aðeins auðveldara heldur en síðast. Body pump tími 6:10 í fyrramálið svo það er eins gott að fara að koma sér í bælið.

laugardagur, 3. desember 2011
Af mér og mínum!
Ýmislegt gengur á hérna í Eyjabakkanum. Logi Snær er búinn að vera slappur síðustu vikur og eftir tvær læknisheimsóknir, einn sýklalyfjaskammt og blóðprufur fékkst niðurstaða - hann er með veirusýkingu sem venjulega kallast einkirningssótt. Frekar leiðinleg veira sem veldur því að hann verður mjög þreyttur og úthaldslítill og til að bæta gráu ofan á svart þá varð hann þakinn í útbrotum á 90% af kroppnum. En allt er þetta nú á uppleið og Logi Snær væntanlega á leið í skólann á mánudag. Daði Steinn er stíflaður af kvefi og maður krossleggur bara fingur um að hann hangi næstu daga, en hann er á leið í nefkirtlatöku á föstudaginn eftir viku. Ég lét loks verða að því að panta tíma hjá háls- nef- og eyrnalækni og hann var fljótur að taka ákvörðun um að láta fjarlægja þetta. Hann verður hins vegar að hafa hálskirtlana í rúmlega ár enn.
Ísak Máni er hins vegar bara í góðum gír í því sem hann er að gera - körfubolti, píanó og félagslífið.
Ég er að reyna að rækta líkama og sál og fór 3x kl. 6 í ræktina í vikunni. Á þriðjudag og fimmtudag fór ég í body pump tíma þar sem maður er aðallega að lyfta og styrkja miðjuna. Á miðvikudag fór ég á brettið og tók einhverja rúma 6 km. en ég verð að segja að það er drep leiðinlegt að hlaupa á þessum brettum. Í morgun lét ég mig hafa það að fara út í frostið og taka 9,2 km á 59 mín. ansi ánægð með það miðað við að færið var alls ekki gott alls staðar.
Nóg af okkur í bili.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)