Esjan fær mig til að blogga aftur, verð að hafa einhverja yfirsýn yfir það hvað ég fer margar ferðir á Esjuna í sumar - einhvern veginn auðveldara að telja það saman hér heldur en á Feisinu.
Ég fór s.s. fyrstu ferðina á annan í hvítasunnu með Davíð og við vorum 60 mín. upp.
Í morgun fór ég ferð númer tvö og náði að klóra mig upp að steininum á 54 mín.
19. júní - Esjan á 48:45 mín. Tók pabba, Guðrúnu og Jennýju með - fóru á 71:50 mín.
21.júní - Esjan á 47:40 mín. Tók pabba (66:40) og Guðrúnu (65:00) með.
23. júní - Esjan á 68 mín. Pabbi, Davíð, Ísak Máni og Logi Snær (á ca 65 mín) fóru með. Þetta var fyrsta ferðin hans Loga upp að Steini.
sunnudagur, 2. júní 2013
laugardagur, 22. desember 2012
Jólin, jólin allstaðar...
...með jólagleði og gjafirnar...
Já það er nú bara þannig að Davíð er nú stressaður yfir að allar gjafirnar eru komnar undir tréð, hann hefur svo miklar áhyggjur af að eitthvað vanti.... nú ef svo er þá fattar það enginn það er svo mikið af pökkum undir trénu, Daða Steini finnst alveg nóg um.
Allt gengur þetta sinn vanagang, ég er búin með aðalskúringuna og líka þá næstu á eftir svo það verður bara létt yfirferð á aðfangadag. Jólatréð var gert klárt í morgun á meðan ég var á hlaupum og Ísak Máni svaf. Svo fór öll hersingin í Fjarðarkaup að versla jólamatinn, en það virðist vera að festast í sessi að skella sér þangað að kaupa hamborgarahrygginn, enda bragðast hann ákaflega vel.
Ég er tiltölulega róleg yfir þessu öllu og meira að segja bara nokkuð róleg yfir fermingunni hans Ísaks Mána sem skellur á strax eftir áramót, enda allt undir kontról.
Ég hef verið nokkuð dugleg við að skokka undanfarið þó ég segi sjálf frá, enda er það allt annað líf að vera í svona skokkhóp heldur en að vera að böðlast þetta einn, maður þarf bara að mæta og hlaupa, en ekkert að hugsa fyrirfram, manni er bara sagt hvað maður á að hlaupa. Frábær hópur og skemmtilegur félagsskapur þarna hjá ÍR skokk.
Skokk:
miðvikudagur 19. des. Jólaljósahlaup, ca 6 km
fimmtudagur 20. des. 7 km á 40 mín
laugardagur 22. des. 11,25km á ca. 70 min.
þriðjudagur 25.des. 10 km í Elliðaárdalnum
fimmtudagur 27. des. 6,9 km.
mánudagur 31.des. 10 km á 54:45
fimmtudagur 3. jan 8.km
laugardagur 5.jan 14.5 km á 1:35klst

sunnudagur, 11. nóvember 2012
Lífið er körfubolti
Þessa dagana er lífið körfubolti. Síðustu þrjár helgar hafa snúist um körfubolta. Fyrst Ísak Máni að keppa með 9.flokk á Hvammstanga og Davíð fararstjóri með. Svo Logi Snær að keppa í Grafarvogi og Davíð liðsstjóri með liðinu hans Loga Snæs. Svo var Ísak Máni að keppa í Borgarnesi með 8. flokk núna um helgina og fór Davíð fyrri daginn og ég seinni daginn. Ekki gekk nú nógu vel þessa helgina því allir leikir töpuðust og þeir féllu niður í B riðil, en þá er bara að koma sér upp í A riðil aftur næst - þar eiga þeir heima!
Ég er að rembast við að skokka á fullu og gengur það bara nokkuð vel nema á laugardögum því þá er alltaf einhver körfubolti að þvælast fyrir mér. Ef það er ekki einhver að keppa þá er leikur í Seljaskóla og Ísak Máni þarf að vinna þar.
Annars er bara alltaf meira en nóg að gera á öllum vígstöðvum.
Ræktin:
Þriðjudagur 6. nóv. 7.5 km skógarleiðangur í Elliðaárdalnum (35-40 mín ca)
Fimmtudagur 8. nóv. 10 km Poweradehlaup á 55:56 mín. Personal best - vííí
Mánudagur 12. nóv. 7,5-8 km kraftganga.
þriðjudagur 13. nóv. 8,9 km á 55 mín.
Fimmtudagur 15.nóv. 9.1km á 55 mín.
Laugardagur 17. nóv. 12,5 km á 80 mín.
þriðjudagur 20. nóv. 7,5 km (ca) með geðveiku brekku og tröppuhlaupi, á um 40 mín.
fimmtudagur 22. nóv. - Skautaferð
laugardagur 24.nóv. - veik
þriðjudagur 27. nóv. - veik
Fimmtudagur 29. nóv. 9,3 kma á ca. 56 mín.
þriðjudagur 4.des. 7,5 km.
fimmtudagur 6.des. 8 km á 47 mín.
laugardagur 8. des. 12.5 km á ca 80 mín
þriðjudagur 11. des 6,9 km
fimmtudagur 13.des 10 km Powerade hlaup á 55:30 mín. Personal best aftur!
Laugardagur 15.des 12,5 km á ca 76 mín

sunnudagur, 28. október 2012
Grasekkjulíf!
Já þetta er nú búið að vera meira grasekkjulífið síðustu vikurnar. Daði Steinn fór í hálskirtlatöku og var heima í ellefu daga eftir það, var þó orðinn nokkuð góður eftir svona átta daga - ég var hins vegar búin að gefa honum frí í leikskólanum og eins voru hinir strákarnir og ég í vetrarfríi. Davíð fór til Parísar eldsnemma á sunnudagsmorgun og skilaði sér heim seint á miðvikudag og auðvitað tókst einum að fá ælupest á meðan mér til lítillar skemmtunar. Ekki stoppaði Davíð lengi heima því í gær var hann farinn á Hvammstanga með Ísak og hans félaga í körfunni. Þeir gerðu sér lítið fyrir og unnu riðilinn sinn í 9.flokki (eru s.s. að spila bæði með 8. og 9. flokk). Þeir eru nú samt hálf sloj hérna í sófanum að glápa á fótbolta. Nú er spurning hvort næstu dagar verði venjulegir og rútínan eins og hún á að vera.
Ég byrjaði að hlaupa með skokkhóp ÍR á fimmtudag og líst bara vel á þetta, fullt af skemmtilegu fólki og stemmningin góð - búin að segja upp kortinu í Reebokfitness og ætla að kýla á skokkið í vetur.
Ræktin:
fimmtudagur 25.okt. 5,8 km með laaaaaangri brekku í kópavoginum.
laugardagur 27. okt. 5 km Seljahringur
þriðjudagur 30. okt. 7 km. á 35 mín.
fimmtudagur 1. nóv. 9,1 km á 52 mín.
sunnudagur 4. nóv. 11 km á rólegu tempói með Ingu systur!

laugardagur, 13. október 2012
Nóg að gera...
Já alltaf nóg að gera á þessum bæ. Daði Steinn var í hálskirtlatöku í gær. Davíð sá um þetta í þetta sinn, já á þessu heimili er jöfn verkaskipting ég sá um nefkirtlana og Davíð hálskirtlana. Allt gekk þetta eins og það átti að gera - Daði vildi ekki fara í spítalafötin og orgaði heil ósköp (eins og síðast) áður en hann var svo svæfður. Hann var nú frekar sjúskaður þegar ég kom heim um hálf fjögur en varð ferskari með hverri klukkustund og fannst honum t.d. ómögulegt að geta ekki fengið einhvern vin sinn til að leika við sig. Í dag var svo ekki annað hægt en að leyfa honum að gera eitthvað og því skelltum við okkur í bíó með Heklu Björk og Ingu og sáum (aftur) Madagaskar 3. Hekla Björk kom svo og lék við Daða á meðan Inga skellti sér í búðir - held að þetta hafi bjargað geðheilsu okkar mæðgina alveg. Veit ekki hvernig við verðum orðin eftir viku :-/ Logi Snær var hjá Óðni vini sínum og Ísak Máni var að keppa í körfu í dag og svo aftur á morgun og Davíð fylgdi með.
Það er brjálað að gera í vinnunni hjá okkur báðum, Davíð að klára eitthvað dæmi áður en hann fer í vinnuferð til útlanda bráðum og ég að reyna að vinna mig í gegnum undirbúninginn sem fylgir Byrjendalæsinu (ný nálgun í lestrarkennslu) sem við vorum að byrja á í Breiðholtsskóla. En allt hefst þetta með góðri skipulagningu. Það verður svo aldeilis gott að fá langa helgi næst því þá er vetrarfrí í skólanum. Ég hef verið eitthvað misgóð í kroppnum undanfarið, sennilega eitthvað uppsafnað eftir smalamennskur, berjatínslu, kartöfluupptöku o. fl. af þeim sökum hefur ræktin eitthvað setið á hakanum og 2 nuddtímar teknir í staðinn - en allt er þetta að koma til baka og hlaupin komin af stað.
Ræktin:
11. okt. 1. Powerade vetrarhlaupið 10km. á 57:30 - hrikalega sátt:-)
13. okt. 5 km. á 29 mín. (Seljahringurinn)
17. okt 5,8 km á 33 mín. í Elliðaárdalnum - neðri hringur.
20. okt 10 km á 63 mín í hálku og kulda í Elliðaárdalnum

miðvikudagur, 26. september 2012
Lífið er dásamlegt....
Jebb, alveg öfugt við síðast. Nú er maður búinn að sleppa sér á fjöllum á eftir rolluskjátum. Fór s.s. síðustu helgi í Baulumýri og skildi alla kallana mína eftir heima, aðalmarkmiðið var að fara að smala og það tókst. Fór á Hamraendafjallið á laugardeginum og svo á Staðarsveitarfjallið á sunnudaginn og gekk þar langleiðina upp að Helgrindum áður en maður smalaði síðan vestur fjallið. Dásamlegt veður og flottur félagsskapur fyrir utan nokkrar óþekkar rollur auðvitað. Kroppurinn var góður og skilaði mér heim með engar harðsperrur - annað en hjá sumum - nefni engin nöfn hér! Svo er bara að sjá hvort maður haldi áfram að smala næstu helgar.
Ræktin:
laugardagur 22. sept. 5 klst. smalamennska
sunnudagur 23. sept. 7 klst. smalamennska
mánudagur 24. sept. 1,5 klst kraftganga
miðvikudagur 26. sept. 5,5 km og 3x brekkusprettir á 46 mín. (með Ísaki)
Laugardagur 29. sept. c.a 12 tíma smalamennska á fjöllum.
sunnudagur 30. sept. c.a. 5 tíma smalamennska
mánudagur 1. okt. 1,5 klst. kraftganga
miðvikudagur 3. okt. 5km á 30 mín. + 2x brekkusprettir (með Ísaki)

fimmtudagur, 20. september 2012
Eymd og volæði!
Það er ekki mikið búið að heyrast frá manni undanfarið - eða öllu heldur sjást eftir mig hér á blogginu. Hef bara ekki nennt að skrifa neitt. Er búin að vera hálfónýt í kroppnum síðustu tvær vikurnar eða svo. Er mjög stíf í öllum vöðvum hægra megin - líklega eftir að taka upp kartöflur:-/
Hef þess vegna ekki verið að stunda líkamsræktina mína, sem er frekar fúlt, því í andlega erfiðu starfi er nauðsynlegt að fá líkamlega útrás og ekki getur maður fengið líkamlega útrás á nemendum sínum því þá væri maður ekki enn í þessu andlega erfiða starfi :-) Annars gengur vinnan nú bara fínt, bara mikið að gera enda er maður kominn með allskonar titla - formaður og leiðtogi t.d.
Annars gengur lífið bara sinn vanagang hérna á heimilinu, Ísak Máni er á fullu í félagslífinu, körfuboltanum og píanóinu, svo sækir hann messur eins og enginn sé morgundagurinn, Logi Snær er á fullu í félagslífinu, körfuboltanum og fimleikunum og Daði Steinn er á fullu í leikskólanum - hann fær ekki að fara í neitt af því það er enginn tími fyrir það þar sem allt fyrir hann er um helgar - enda nógur tími framundan fyrir hann.
Ræktin:
miðvikudagur 19. sept. 3km á bretti á 16 mín.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)