sunnudagur, 6. maí 2012

Baulumýri

Þessari helgi sem er að ljúka eyddum við í Baulumýri. Planið var að græja gulræturnar, garðurinn var stunginn upp á laugardag en sökum hraða á rokinu var ekki hægt að sá fyrr en í fallega verðrinu í dag. Ég fékk mikla hjálp frá öllum drengjunum mínum og pabba mínum - ætli ég leyfi þeim ekki að njóta uppskerunnar með mér ef hún verður góð - nógu mörg fræ fóru allavega í moldina. Yndislegt alltaf í Baulumýri og alltaf gott að koma heim líka. Fórum lengri leiðina heim og komum við í Grundarfirði - allir nema Logi Snær sem vildi ekki yfirgefa Baulumýri strax og fékk að vera áfram fram á þriðjudag þegar amma hans og afi koma í bæinn.

Ræktin:
mánudagur 30. apríl Tabata 60 mín.
þriðjudagur 1. maí Skokk 5,5 km á 34 mín.
miðvikudagur 2. maí TNT 60 mín.
Fimmtudagur 3. maí frí
föstudagur 4. maí Tabata 60 mín.

2 ummæli:

  1. Ég skil. Davíð fær ekki gulrætur...

    SvaraEyða
  2. Davíð er að sjálfsögðu einn af drengjunum sem hjálpuðu mér - svo hann fær gulrætur, enda hefur hann lært heilmikið um gulrótaræktun.

    SvaraEyða